Árið 1949 tóku menn sig saman og hófu þann atvinnurekstur að aka sendibílum. Ástæða þess að stofnaðar voru sendibílastöðvar voru meðal annars ákvæði sem vörubílstjórar settu inn í samninga sína, á árunum eftir síðari heimstyrjöldina, að þeim bæri eigi skylda til að hjálpa til við hleðslu eða losun bílanna. Þetta atriði opnaði augu margra fyrir því að stofna sendibílastöðvar sem hefði það að markmiði að þjónusta fólk og aðstoða við allskonar flutninga, stóra sem smáa. Hópur sendibílstjóra stofnuðu Nýju Sendibílastöðina þann 2. febrúar 1950. Nýja Sendibílastöðin var fyrst til húsa í Aðalstræti 16 í Reykjavík, en síðar eða árið 1984 var flutt að Knarrarvogi 2 í Reykjavík í myndarlegt hús sem bílstjórar byggðu, og hefur Nýja Sendibílastöðin haft aðsetur þar síðan. Nýja Sendibílastöðin hefur ávallt leitast við að veita sem allra besta og fjölbreytilegasta þjónustu í öllum flutningum, stórum sem smáum. Viðskiptavinirnir bera fram óskir sínar og bílstjórar Nýju Sendibílastöðvarinnar gera sitt besta til að verða við þessum óskum. Persónuleg og ábyrg þjónusta er markmið Nýju Sendibílastöðvarinnar – þjónusta í þína þágu. Þann 2. febrúar 2025 fagnaði Nýja Sendibílastöðin 75 ára afmæli. Einkunnarorð stöðvarinnar hefur alltaf verið: – traustir bílstjórar á traustum grunni –. Hér að neðan má sjá mynd af aðsetri stöðvarinnar í árdaga, þegar hún var staðsett við Miklatorg.
Vinsamlegast hringið í síma 568-5000 til að komast í samband við bílstjóra.
Komdu við hjá Nýju sendibílastöðinni í Knarrarvoginum og fylltu á – traust þjónusta í yfir 40 ár.
Boðið er upp á örugga þungaflutninga með reyndum bílstjórum og traustum búnaði.
Við sjáum um flutning á píanóum og flyglum með reyndum mönnum og réttum búnaði.
Flytjum allar gerðir peningaskápa, stóra sem smáa.
Við bjóðum örugga búslóðaflutninga fyrir heimili og fyrirtæki af öllum stærðum.
Við sjáum um alla flutninga – stóra sem smáa, allt frá búslóðum til píanóa og sorpuferða.
Nýja Sendibílastöðin er staðsett á Knarrarvogi 2, 104 Reykjavík.
Við bjóðum upp á allan almennan flutning, þar á meðal sorpuferðir, píanóflutningar, peningaskápaflutningar, þungaflutningar og búslóðaflutningar.
Afgreiðslutími er mánudaga til föstudaga frá klukkan 07:50 til 17:00. Bílstjórar svara eftir lokun afgreiðslu.
Sími: 568-5000. Netföng: ns@sendibilar.is og bokhald@sendibilar.is.
Nýja sendibílastöðin er 75 ára gömul og var stofnuð 2. febrúar 1950.
Verð tvöfaldast við hvern auka mann.
Við leggjum áherslu á áreiðanleika, fagmennsku og framúrskarandi þjónustu. Hér eru nokkur orð frá okkar viðskiptavinum sem hafa treyst Sendibílum fyrir sínum flutningum.
Kurteisir vinnumenn, og mjög góð þjónusta! Og borgaði helmingi minna en ég bjóst við ég myndi þurfa borga fyrir flutning. Topp lið sem standa fyrir sínu 👌💪